|
Jebbs... þessi síða er ekki að gera sig hjá mér.. en nú er ég að hugsa um að henda inn einni línu _______________________________________________________________
huhu... þessi var arfaslappur!! 
í dag fékk ég þann heiður að leika meðvitundarlausan sjúkling um borð í björgunarbát (svona appelsínugulum uppblásnum) og var á reki í hellisfirði í um það bil klukkutíma!! Ferlega notalegt fyrst.. bara eins og að svífa um á skýji og ég var alveg að sofna þegar það kom fullt af sjó inn.. og ég bara í flotgalla.. þannig að ég ofkældist næstum því í alvörunni!! ..en mín bara harkaði af sér og beið eftir að skipið kæmi auga á mig, þá kveikti ég í blisi og svo komu þessir vasku björgunarsveitamenn... með Pálma minn í broddi fylkingar... ..og björguðu mér .. ekkert munn við munn samt.. varð fyrir vonbrigðum.. jæja.. en þeir hífðu mig uppí bátinn og settu mig á börur og vippuðu mér inní stýrishúsið..en ég fékk að lifna við strax því ég var orðin sjóveik og vildi ekki drukkna í eigin ælu... það hefði alveg eyðilagt kúlið!! Svo var ég bara sjóblaut uppað mitti meðan áhöfnin bjargaði Hlyni mínum sem var um borð í stóra björgunarbátnum.. en það átti að hafa kviknað í honum.... en hann var bara hress!!
Semsagt þessi ferð.. sem ég hélt að yrði kannski rómantísk skemmtisigling.. breyttist skyndilega þegar ég var skilin eftir útá miðjum firði..
..en guð einn veit hvað Hlynur og kennarinn gerðu á meðan.... 
Jæja... annars er svosem ekkert að frétta svo ég segi bara eins og Sigga Beinteins hér um árið...
Ég vil lifa lífinu, upplifa slatta af hamingju nenni ekki að hanga hér vill ferðast og skemmta mér!!
Við erum farin til Ítalíu, nánar til tekið fljúgum við til Milano.. förum þaðan til Dormadorrsula.. og þaðan til Magunacua ..(mjög sennilega ekki rétt skrifað!) ..Við ætlum að fara að fara að heimsækja Roberto og Sovrönu sem Hlynur var að vinna með á þyrlunni hérna um árið!!.. það er ekkert planað.. nema að við förum út um hádegi mánud og komum heim rétt fyrir miðnætti á næsta mánudag.. sem þýðir að ég missi af fyrsta þættinum með Magna.. en það verður bara einhver að taka að sér að sms mig strax.. og svo annar að taka upp fyrir mig þáttinn!! 
..þannig að þetta er svona hálfgerð óvissuferð..sem er bara spennandi.. veit svosem ekkert hvað er hægt að skoða ef við stoppum eitthvað í Milano!!
..Heimurinn er svo lítill... mér sýnist á öllu að Aldís Fjóla eigi að lenda á sama tíma og við í Milano.. þannig að vonandi bara hitti ég á skvísuna á Malpensa flugvellinum!! hver veit..
jæja.. ég er farin að rugla...
Harpa - italiano!! 

|