já það er ekki hægt að segja að ég sé góður bloggari... en ég reyni!
á síðustu dögum og vikum hafa mér borist nokkrar "áskoranir" .. og fyrst klukkuðu Hoffa og Auður mig og hér eru niðurstöðurnar úr því:
4 störf sem ég hef starfað við um ævina:
* Hárgreiðsla í þjóðleikhúsinu.
* Fiskvinnsla hjá Kónginum.
* Leiðbeinandi á Leikskóla.
* Afgreiðsla og listsköpun í Álfasteini.
4 myndir sem ég get horft á aftur og aftur:
* rent
* Guffagrín
* Forest Gump
* fyndnu fjölskyldumyndirnar í sætúni!! :)
* Þrek og tár (uppfærsla þjóðleikhússins)
4 staðir sem ég hef búið á:
* Borgarfjörður eystri
* Reykjavík
* Garðabær
* Neskaupstaður
4 sjónvarsþættir sem ég fíla:
* Bráðavaktin
* The OC
* ED
* Sex in the city
4 staðir sem ég hef farið í frí:
* London
* Danmörk
* Þýskaland
* all around Iceland
4 heimasíður sem ég heimsæki daglega:
* http://www.borgarfjörðureystri.is
* http://mbl.is
* allar bloggsíður hér til hliðar og fleiri
* http://leikjanet.is
4 uppáhalds matartegundir:
* mjólkurgrautur og slátur
* jólamaturinn hjá mömmu
* Skálafleki í söluskálanum (mínus lauk)
* humar
4 geisladiskar sem get ekki verið án (þessa dagana):
* Robbie Williams - Intensive care, Robbie Williams show, Robbie: Live at Knebworth
* Lögreglukórinn - H´fileg refsing (égveit ég veit.. nöörd!)
* James blunt - Back to bedlam
* Jón Sig. - Til þín
* Jónsi - Jónsi
* og svo allir söngleikjadiskarnir mínir.. rocky horror, gauragangur, edith piaf, Superstar...
* svo náttúrlega allir rúntdiskarnir okkar erlu
* FJÖRÐURINN okkar - sætúns copyið með öllum bestu borgarfjarðarlögunum!!
4 staðir sem ég mundi frekar vilja vera á:

* Jamaica * Ástralía * Afríka * Brasilía
4 hlutir sem ég hlakka til:
* fara til landanna sem ég var að telja upp
* Eurovision í maí
* sumarsins..
* þegar ég verð orðin brjálæðislega rík!!
jæja.... og svo skoraði Óli frændi minn Bjöss á mig að setja niður 15 laga brennslu með lögum eftir Meistara Megas! (í engri sérstakri röð)
1. Heilræðavísur #2 - (kristilega kærleiksblómin spretta kringum) hitt og þetta)
2. Dufl (Ókunn dufl) - (kristilega kærleiksblómin spretta kringum) hitt og þetta)
3. (Borðið þér) Orma frú Norma - Paradísarfuglinn
4. Reykjavíkurnætur - paradísarfuglinn
5. Spáðu í mig - paradísarfuglinn
6. Tvær stjörnur - paradísarfuglinn
7. Vertu mér samferða inn í blómalandið amma - (kristilega kærleiksblómin spretta kringum) hitt og þetta)
8. Ragnheiður Biskupsdóttir - Paradísarfuglinn
9. Þóra Þóra - (kristilega kærleiksblómin spretta kringum) hitt og þetta)
10. Gamansemi guðanna - þrír blóðdropar
11. Þú bíður (allavegana eftir mér) - paradísarfuglinn
12. Mæja Mæja - Þrír blóðdropar
13. Gefin fyrir drama - Þrír blóðdropar
14. Ég á mig sjálf - Paradísarfuglinn
15. Lóa Lóa - paradísarfuglinn

(þessi kall heitir líka Megas!)
...og hana nú!! þetta var nú aldeilis skemmtilegt!
annars er bara ekkert í fréttum.. hér er allt á kafi í snjó...sem er bara alveg ágætt. Ég fór á tónleika á Álfa café um síðustu helgi með Sigga Björns og það var bara feiknastuð.. Fólk mætti fyrr til að fá sér fiskisúpu og fleira gotterý sem Kristjana hafði fram að færa.. mhh.. svo prufukeyrðum við systkinin og Þröstur og Hoffa nýjastu spilin í safninu, Rapidough og trivial.. og það var algjör snilld!!
..svo er ég aðeins að hjálpa til við uppfærslu VA á Vælukjóa (Cry baby) .. generalprufa í kvöld og frumsýning á morgun!
..annars er bara sama plan og venjulega.. heim um helgina.. ætla að klippa afa og lita og klippa ömmu stínu! og svo bara slappa af.. og það er náttúrlega best hjá pabba og mömmu!! ..jæja, ég ætla nú ekki að ofreyna mig hérna.. enda eru sennilega allir hættir að líta hér inn! (*gremja*)
Harpa - öll að koma til í þessu bloggi!!