..ég hugsa rosalega mikið... stundum alltof mikið um allt og alla.... en í gær þegar ég var að reyna að sofna komst ég að þeirri niðurstöðu að það hlyti að vera eitthvað mikið meira en lítið að mér!! ...
Ég var semsagt að hugsa um hvað ég hlakkaði nú til að fara til Kúbu.. og hvað það verður ofsalega gaman.. en ég hef náttúrlega aldrei farið á sólarströnd og aldrei farið út í sjó. og veit ekkert hvað er gert á svona ströndum.. þannig að það hræðir mig dálítið... og þá fór ég að hugsa "ó nei kannski eru hákarlar í sjónum.. Það yrði nú alveg týpískt að þegar Harpa litla loksins kæmist á sólarströnd að hún yrði étin eða kæmi lappalaus til baka" ..og þá fór ég að spá "hvað væri nú gáfulegast að gera ef maður væri að synda út í sjó og sæi hákarl"... (hef sko séð í bíómyndum að það á að láta eins og maður sé dauður... en það er nú sennilega pínulítið erfitt að vera bara kúl á því ef það er hákarl að koma svammlandi að manni)... og þetta hugsaði ég fram og til baka (..var komin með hraðan hjartslátt og allt, ég sá þetta svo skýrt fyrir mér..) og komst að þeirri niðurstöðu að sennilega væri bara best að sleppa því að fara út í sjóinn! ... og sofnaði svo stuttu seinna!

Harpa - ..ooooofurhugsuður!!