...jæja... hér koma nokkrir punktar um hvað Harpan er búin að vera að brasa síðustu vikurnar og því ekki haft tíma til að blogga...
* Ég fór til Reykjavíkur með Hlyni.. hann fór á námskeið uppí Borgarnes, en ég fór í kringluna með Erlu á meðan!!
* Ég fór í Þjóðleikhúsið með Hlyni og Ingu að horfa á Eldhús eftir máli.. stórkostleg sýning!!!

+ Við keyrðum svo heim á sunnudeginum á bíl sem Gummi hennar Ollu var að kaupa sér.. og með nýja bátinn hans á kerru í eftirdragi!
+ Ég byrjaði að vinna uppá spítala um mánaðarmótin, sem læknaritari... og lýst bara rosalega vel á þetta starf!!! 
+ Nú svo fórum við aftur til Reykjavíkur, en núna með Eiríki og Svölu, á Árshátíð á Hótel Örk í boði Hölds (þetta er fáránlegt nafn ég veit!!)
+ Fórum í leikhús á föstudeginum.. eftir allt búðarápið.. fórum í Þjóðleikhús.. auðvitað.. og sáum 8 konur.. og það er alveg hrikalega skemmtilegt!!!
Fögur eiginkona, tvær ungar og óstýrilátar dætur, aðþrengd mágkona, gráðug tengdamamma, dularfull ráðskona og kynþokkafull þjónustustúlka. Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi í rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað? Þegar sjö villtar konur eru samankomnar og sú áttunda bætist í hópinn getur allt gerst! Glæpsamlegur gamanleikur með söngvum og dansi!

+ Á laugardeginum var "aðeins" kíkt í kringluna.. baara til að drepa tímann.. en svo var óvissuferð kl 2 á örkinni.. sem var svo bara ratleikur.. en við hlupum um hveragerðisbæ þveran og endilangan með 2 egg.. eitt soðið og eitt hrátt og leystum í leiðinni ýmsar þrautir.. mjög skemmtilegt...
+ Svo skelltum við okkur bara í laugina og pottinn til að hita sig upp fyrir kvöldið.. sem var æðislegt.. 3 rétta geeeeeðveik máltíð, svo var Helga Braga veislustjóri.. helv.. góð og svo var fluttur annáll og fullt af skemmtiatriðum! ..Eftir skemmtidagskránna var svo ball með Hljómsveitinni Feðgunum... ujá... og það var jafn misheppnað og ... sei nó mor!!.. úff...
..þannig að við fórum bara á rúntinn á selfoss!!
+ Keyrðum svo austur daginn eftir.. á bíl sem óli grís á að vera á í opinberri heimsókn á austurlandi!! jebbs!
..komum svo náttúrlega við hjá uppáhaldsfrænku okkar á Höfn, þar sem beið okkar stærsta pizzuhlaðborð sem ég hef séð á ævinni!! ..óótrúlega gott!!! .. svo stökk ég aðeins inn til Hrafnhildar og kíkti á allt nýja dótið sem hún var að kaupa sér.. usssussuss!! 
+ Ég var að klára síðasta vinnudaginn minn uppá leikskóla í dag.... sniff sniff... ég á eftir að sakna ormanna minna hræðilega mikið!!! 
+ Svo erum við að fara á Seyðisfjörð á eftir með Auði og Daða að sjá Alveg brilljant skilnað.. svo er ég að spá í að skella mér á borgarfjörð eftir sýninguna!! 
jæja.... best að fara að taka sig til fyrir leikhúsferðina.. Góða helgi!!
Harpa - óver and át!
